Draumórar í íslenska skammdeginu...

þriðjudagur, október 04, 2005

klukk

  1. mér finnst gaman að dansa og ég hef lært hipphopp dans
  2. mér finnast pils sniðug og mér finnst gaman að vera í þeim, þótt þægilegast sé að vera í gallabuxum. Fötin mín þurfa alltaf að vera í mörgum litum, mér finnst ekki flott að vera bara í svörtu og finnst skrýtið að sumt fólk gengur í öllu svörtu
  3. ég er söngfugl! Mér finnst gaman að syngja, elska söngleiki (mér finnst gaman að leika líka), singstar (þótt ég eigi það ekki), karókí, í kór og í söngtímum. Einnig hef ég bara mjög gaman af tónlist yfir höfuð! :)
  4. mér finnst gaman að tala útlesku! ég kann:
    Íslensku
    Dönsku
    Ensku
    Ítölsku
    Auk þess hef ég lært frönsku í 1 og 1/2 ár en get svo sem ekki sagt að ég kunni mikið eða geti talað frönskuna. Ég get líka talað nokkra norsku og svo hef ég lært þýsku á ítölsku!! Svo eftir áramót er ég að fara að læra spænsku!! Þegar ég tel öll þessi tungumál saman þá eru þetta alls 8 tungumál!! Það er slatti og ég er EKKI skráð á málabraut ;)
  5. ég þjáist af fullkomnunaráráttu á háu stigi! Sem gerir það líka að verkum að ég er ótrúlega kröfuhörð á sjálfa mig og þoli alls ekki þegar mér gengur illa!!

þetta voru nú ekki upphaflegu staðreyndirnar í klukkpóstinum mínum, en það er alveg jafn gaman af þessum eins og hinum, ef þær eru bar'ekki skemmtilegri ;)