Draumórar í íslenska skammdeginu...

laugardagur, mars 25, 2006

LFMH kynnir: ÍSLENSKI FJÖLSKYLDUSIRKUSINN

OMG, skilrru...

jæja krakkar mínir...

nú eru sýningar hjá LFMH á Íslenska fjölskyldusirkusnum byrjaðar og erum við sko að slá í gegn!! ;) Það er ekki á hverjum degi sem áhugaleikhús fær dóma á þessa leið:

"Ég hef fáar sýningar séð þar sem jafn stór hópur skilar jafn góðu jafnvægi milli stjórnlausrar orku og agaðrar nákvæmni. Að hópurinn skuli geta gert þetta svona ungur er ekkert minna en kraftaverk"

"Íslenski fjölskyldusirkusinn er einhver eftirtektarverðasta sýningin á fjölum borgarinnar í dag".

þar af leiðandi ætlið þið öll að koma, er þaggi?? ;) næsta sýning er í kvöld!!! ;D

annars er það að frétta af mér að ég er bara á fullu í skólanum, söngnum og svo leiksýningum þess á milli... á morgun er hún litla frænka mín svo að fara að fermast... til hamingju með það Andrea mín :)

EN núna ætla ég að fara að skrifa heimspeki ritgerð sem ég átti að skila fyrir viku!! svo er stjórnmálafræðipróf of heimspeki próf fram undan í þessari viku auk 4 sýninga...

bæjó (jón) spæjó! ;)