Draumórar í íslenska skammdeginu...

sunnudagur, desember 25, 2005

Gleðileg jól elsku dúllurnar mínar og hafið það sem best um jólin og áramótin!!

Jólaknúsar!
Edda =)

þriðjudagur, desember 20, 2005

skólinn búinn

já, einkunnirnar komu í dag og það gekk bara mjög vel, lægsta einkun var 8!! :D
var með meðaleinkunn upp á 9,0, ef teknar eru einkunnir í leikfimi og skólasókn en í svona bóklegum fögum þá var ég með 8,6 og svo staðist í Parísaráfanganum..

óvæntasta einkunnin: enska - 8 / jóga - 10

mánudagur, desember 12, 2005



ítalskur jóli á hraðferð!

fimmtudagur, desember 08, 2005

jæja..

Þá er sagan búin og það gekk ágætlega!! EN alltaf þarf maður lengri tíma til að skrifa í söguprófum... =/ náði meira að segja að róa mig niður með spjalli við sögufélagann minn fyrir próf svo ég var ekkert mikið stressuð, þó að í enda prófsins skrifaði ég bara allt í belg og biðu

Ég hef komist að þeirri niðurstöðu að einn kennara minna beitir kynferðislegumisrétti! hmm... obbobbobb...

Þegar ég er búin að komast að því hvaða strætó ég get tekið í tónastöðina (þar sem það er svo mikil rigning neni ég ekki að labba ;) ætla ég að fara út í kringlu og fá mér að borða og setjast niður á kaffihús og lesa sálfræði.. vonandi losna ég þá við þessa undarlegu tilfinningu sem ég er með í maganum eftir þetta expressó sem ég drakk úr sjálfsalanum fyrir prófið sem var víst svo eitthvað súkkulaðiexpressó, sem ég gerði strong með miklum sykri þar sem ég svaf sama sem ekkert í nótt og vaknaði klukkan 6 í morgun!! hehe...

Jólaprófskveðjur!!

miðvikudagur, desember 07, 2005

mér til mikillar undrunar er ég allt í einu skráð bæði á félagsfræði og málabraut!!

ætli þetta þýði þá ekki engin afbrotafræði og meri franska!! =/

föstudagur, desember 02, 2005

próf

fyrsta ALVÖRU prófið í dag eftir 5 tíma!! ó sjitt!!! ahhrg!! =/