Draumórar í íslenska skammdeginu...

fimmtudagur, september 28, 2006

í dag grætur ísland...

Nú ætla þeir að rista djúpan skurð.
Svo djúpan að hann mun aldrei gróa.
Með þessum skurð munu fleiri skurðir opnast.
Sjaldan er ein báran stök.

Með þessum skurði munu þúsundir annarra lífvera missa heimili sín.
Lífverur sem mér þykir vænt um og elska af öllu hjarta.
Smám saman mun ég blæða og þar með blæða allir sem á mér þurfa að halda.
Án mín er ekkert líf.


(fyrirsögnin tengist ekkert eftirfarandi pósti)

á mánudaginn var afmæli í skólanum og eins og í alvöru afmælum þá fengu allir ís.

Afmælisbarnið var enginn annar en MH sjálfur og sungum við nemendur og kennarar hans "hann er 40 ára í dag" undir fögrum undirleik Jóa stærðfræðikennara á klarinett og félaga hans....

í tilefni afmælisins var skólinn allur skreyttur með blöðrum í fánalitunum og voru blöðrur við hverja stofu. Allan daginn var manni svo að bregða við að fólk var að sprengja þessar blöðrur...

Í morgun var einn IB-nemandi búinn að troða sér ofan í frystikistuna sem ísinn hði verið geymdur í og var að láta taka myndir af sér...

það sem þessum IBburum dettur í hug... ;)

þið sem vitið ekki hvað IB nemi er eruð bara ekki inn... ;)

laugardagur, september 23, 2006

blogg..

lagið: ma tu sei scemo (en þú ert kjáni) - Povia

í rauninni hef ég ekkert að blogga um.. langaði bara að segja !

Allt gengur bara voða vel og ég er meira að segja inni á myspace !! það gerist aldreii,,,,,

ég bætti inn link á aldo, það er samt ekkert á síðunni hans nema myndir... ég lagaði svo einhverja linka.. ef eitthvað er í klessu látið mig bara vita :)

mánudagur, september 11, 2006

tjékk þiss át


tjékkið á þessu!

www.myfootprint.org

endilega setjið útkomu ykkar í kommentin ;)
Hvað þarf marga hnetti ef allir lifðu eins og þú?

lagið: Bass Hunter - Botten Anna


kveðja,
edda rauðhærða...