Draumórar í íslenska skammdeginu...

fimmtudagur, maí 25, 2006

kosningaáróður..

ég er að drukkna í bæklingum og bréfsnefsum frá flokkum bæjarins... ég er búin að fá 2 risa plaggöt frá framsókn þar sem hægt er að svara nokkrum heimskulegum spurningum um þau og vinna utanlandsferð í staðin. spurningarnar eru svona:
Hver er í 4. sæti framsóknar í kóp.?
a) bjarni fel
b) samúel örn man-ekki-hversson
c) david beckham

svo er d listinn búinn að senda mér geisladisk og hringja í mig og fleira, samfylkingin sendi í dag fréttablað ungra jafnaðarmanna í kóp á glanspappír og líka til sigurðar, bróður míns. kom mér skemmtilega á óvart hvað ég kannaðist við mörg andlit í blaði ujk.. fólk sem maður vissi ekki að hefði áhuga á pólitík. kannski voru þau bara að nota random myndir, hver veit. í dag kom líka bréf frá vg. eitt lítið, ljósritað mjög flatneskjulegt bréf, póstkort (geggjað samt), næla UVG og mynd af emil...

reyndar eru stjórnmál mjög flatgneskjuleg yfir höfuð...

er samt búin að ákveða hvað ég á að kjósa ;)


Könnun:
á ég að ganga í stjórnmálaflokk?
Hvaða flokk?


svar óskast í kommentum

þriðjudagur, maí 23, 2006

jæja, einkunnirnar eru komnar í hús.

ég heg aldrei haft eins mikið að gera og á þessari önn og aldrei haft eins lítin tíma til að læra en mér gekk bara ótrúlega vel!! fékk tvær 8 (íslenska og saga) og 9 (ítalska, stjórnmálafræði, heimspeki og franska) í öllu hinu! Fékk reyndar 8 í skólasókn!! :P Sem er bara leikfélaginu og útlöndunum að kenna ;)

en já.. nú tekur bara vinna vinna vinna við og svo er maður alltaf til í að kíkja á djammið! ;)
og núna á föstudaginn er fyrsti frídagurinn minn í fokking 2 vikur!!!! ó já... erfitt líf, en pælið í því hvað ég verð rík eftir sumarið og hvað ég get eytt peningnum í marga flugvéla og lestarmiða??!! hehe ;) hann fer allavega ekki í bíl.... :P - tökum strætó!
súr póstur... (talandi um póstmenn.. póstburðarmaðurinn í hverfinu mínu er núna my biggest fear... ) (sjitt, ég skrifaði ensku....) - íslenskt mál!!

en já.. fyrir þá sem vilja gáfulegan póst lesið um bæjarpólitíkina!! stutt í kosningar, eru allir búnir að ákveða sig??

laugardagur, maí 13, 2006

"það er gott að búa í kópavogi" - er það?

En aftur að upprunalegum söguþráð. Þar sem ég sá þessa fána kviknaði svo hugmynd hjá mér að kíkja kannski í heimsókn á þessar skrifstofur og næla mér í nælur og lesefni, til að vita líka við hvern maður á að setja EKS þegar þar að kemur. Ég trúi því líka að maður þarf að vita fyrir hvað maður stendur. Ég byrjaði hjá VGK og eftir að hafa labbað upp margar, margar hæðir fann ég litla kosningaskrifstofu og mann að nafni Emil. Emil er ungur og efnilegur frambjóðandi í þriðja sæti á framboðslistanum og sat ég á spjalli við hann í svona einn og hálfan tíma held ég. Hann er einnig formaður VG í kópavogi. Við röbbuðum um umhverfis- og menningarmál, menntunar- og skipulagsmál, hagsmuni innflytjenda og kvenfrelsi, auk þess að ég spurði hann út í tónlistarskólavesenið og svo báru upp á góma okkar samsæriskenningar og byggingagleði Gunnars B. Ég sníkti nokkra pappíra og fékk nokkrar flottar nælur og póstkort sem er mjög skemmtilegt og lýsir mjög stefnu ríkisstjórnarinnar í dag. Þegar ég sagðist nú ekki vera flokksbundin eða neitt en hefði nú samt ákveðin áhuga á pólitík var reynt að lokka mig í starf UVGK og mér væri svo velkomið að kíkja á uppákomur og þess háttar það væri nefnilega svo gefandi og gaman að vera í svona flokkstarfi. Að lokum þakkaði hann mér innilega fyrir spjallið og sagðist hafa haft gaman af heimsókn minni og sagði að það væri alltaf gaman að fá fólk með hugsjónir til að rabba við. Ég hélt því ánægð með uppskeruna út á götuna og veðrið var sem spegilmynd líðan minnar sem stuðlaði að enn meiri hamingju. Ég gekk því nokkra metra upp að gamla húsnæði Tónlistarskólans og skottaðist upp á þriðju hæð. Þar var mikið stærri skrifstofu að finna og þar settist ég á spjalli við formann ungra jafnaðarmanna í kópavogi. Við hann talaði ég svo í rúman klukkutíma. Við skiptumst á skoðunum og álitum, rifumst smá um Evrópusambandið og ég fræddist um stefnu þeirra í sambandi við Tónlistarskólamálin. Hann spurði mig svo hvað mér fannst og hverjar mínar skoðanir væru og ég bað hann svo að rökfæra sínar skoðanir. Einnig var rabbað hér um umhverfis-, menningar-, innflytjenda-, menntunar-, kvenfrelsis- og skipulagsmál. Ekkert kaffi var í boði hér en hann bauð mér að kíkja á kaffi borg núna á næstunni þar sem þeir væru að koma upp aðstöðu og þar væri hægt að fá kaffi og kleinu. Að lokum tók hann mig svo að lokka mig inn í ungliðastarfið þeirra. Hann tók niður e-mailið mitt og lofaði að senda mér e-mail um uppákomur og þess háttar sem væri í boði á vegum ungra jafnaðarmanna. Ég fékk engar nælur en svolítið magn af glanspappír. Að lokum þakkaði hann mér kærlega fyrir spjallið og sagði mér að smám saman mundi hann geta sannfært mig um inngöngu Íslands í ESB og það kæmi bara með tímanum. Hann sagði líka að það væri sjaldan sem að svona ungt fólk kæmi að tala um pólitík og hefði eitthvað vit á því og vissi um hvað það væri að tala og með góðar hugsjónir. Hann sagðist svo vona til þess að sjá mig aftur og ég þakkaði kærlega fyrir mig og þær upplýsingar sem hann hafði veitt mér. Ég trítlaði svo niður stigann og kom út í þetta dásemdar veður sem gerði mig svo glaða að ég ákvað bara að labba heim til mín! Á leiðinni heim var svo heitt að ég var að kafna! Þegar ég kom heim sagði ég svo foreldrum mínum hvað ég hefði eiginlega verið að gera í dag en það fussaði bara í pabba mínum svo ég ákvað að láta um kyrrt sitja og halda þessu bara fyrir mig. Yfir kvöldmatnum sagði pabbi minn svo: “Hva, hún er bara orðin kommúnisti áður en maður veit af!” – ekki skil ég nú hvað allir eru alltaf að bendla mig við kommúnisma. Ókei, ókei.. ég skrifaði nú ritgerð um kommúnistabyltinguna í Kína og svo um Maóisma í annarri ritgerð.. Vinur minn fá Argentínu heimtaði að fá mynd af mér með Che Guevara bók í hendinni og hnefann á lofti! Ég er í mh en það þýðir ekkert að ég sé kommúnisti svo hættið að halda því fram! En þetta var bara út-úr- dúr. En allavega þá er ég skrefinu nær að um það við hvern skal eksa þegar þar að kemur. Ég ætla nefnilega að eksa við þá sem standa fyrir það sem mér finnst skipta máli, ekki við þá sem ég þekki eða tel mig geta grætt á. Kant sagði að þú skalt ætíð fara eftir þeirri lífsreglu sem þú vilt að verði að almennu lögmáli. Þú skalt ekki fallast í freistni með því að breyta rangt til að ná fram eigin hagsmunum og brjóta þannig á hinu skilyrðislausa skylduboði. Það er skylda þín að breyta rétt!! Til að ljúka þessu svo þá virðast nýjir tímar að nálgast í pólitíkinni í Kópavogi. Allavega að mati Samfylkingarinnar og VG enda er kannski tími til að stjórnin úr hægri kanntinum sem er búin að vera við völd í ein 16 ár fari í smá frí og endurnæri hugmyndaflug sitt. [/Viðvörun lýkur] Jæja?! Hver entist í að lesa þetta? ;)

"það er gott að búa í kópavogi" - er það?

Á þriðjudaginn fór ég í fyrsta prófið mitt og það síðasta í mh þessa önnina. Það var heimspeki og gekk bara vel, krossaspurningarnar voru aldrei þessu jafnt bara nokkuð auðveldar og mér gekk ágætlega með skrifuðu spurningarnar. Lærði þannig séð ekkert mikið fyrir prófið þar sem ég vissi a ég mundi fá svona 8 í því miðað við gengið í vetur.

[Viðvörun = Stjórnmálapóstur]

En þar sem ég var búin að missa af fjarkanum ákvað ég að taka Seinn upp í borg hamrana og fara einn hring þar. Það fyrsta sem ég sá þarna í hinum smekklausa miðbæ kópavogs voru stærðarinnar myndir af frambjóðendum samfylkingarinnar á cafe borg. Þegar litið er svo hinumegin við götuna voru svo fánar vinstrigrænna. Vinstri grænir hafa ekki verið áberandi í bæjarpólitíkinni hér í kópavoginum og buðu þeir fyrst fram við síðustu bæjarstjórnarkosningar en náðu ekki manni inn. í dag er markmiðið að koma inn helst tveimur mönnum inn og virðast kópavogsbúar að vera að vakna til umhugsunar um að styðja einhvern annan en Gunnar Birgisson (bæjarstjórinn okkar) sem samkvæmt Bubba Morteins fer í olíubað. Olíubaðið ætti samt að henta honum vel því byggingargleði hans er svo mikil að hann ætlar að fara að byggja út í sjó!

sunnudagur, maí 07, 2006

grallarar

í gær gerðist ég óþekkur námsmaður og fór og kíkti niðrí bæ ásamt henni drauma dísu.
við ætluðum nú ekkert að vera lengi þar sem við erum nú báðar í prófum og söngpóf að koma upp. en allavega þá löbbuðum við beint inn (!!) á kúltúra og settumst í sófa og ræddum málin og slúðruðum smá inn á milli ;) ég verð að segja að kúltúra er mjög áhugaverður staður. það er svo mikið af týpum þarna, alls konar fólki bara og ég verð að viðurkenna að ég gleymdi mér svolítið í því að horfa á fólki og undrast yfir fjölbreyttninni.

en á endanum kom svo fólkið sem við vorm búnar að mæla okkur mót við :) þá var kjaftað og dansað og drukkið (nema ég, ég var á bíl) en samt í hófi samt... allavega þá átti ég í samræðum við eina manneskjuna á þremur tungumálum (eða kannski fjórum...) það kvöld. plús það að hlusta á spænsku líka.. þetta var nú merkilegt.. alltaf gott að geta tjáð sig í sem flestum orðum.

við komum seinna heim en áætlað var vegna ýmissa ástæðna, en ein stór var sú að ég þurfti að keyra dísu í grafarholtið sem er bara langt frá öllu!!

í morgun var ég svo dregin niður í morgunkaffi úti í sólinni. ég settist svo út seinna um daginn og tók með mér heimspekibækurnar (þær sem ég ætti að vera ða lesa einmitt núna) og svo tölti ég niður í snæland vídjó og keypti mér ís, eftir að hafa beðið í 10 mín. langri röð...

svo kom ég hinngað í tölvuna að hangsa.. ég virðist þjást af einbeitingarleysi á háu stigi í augnablikinu... =/

jæja þá eru það epikúringar og skyldusiðfræði :)

þriðjudagur, maí 02, 2006

ég verð líklega að vinna í tveim vinnum í sumar... Nú er bara að vinna eins og brjálæðingur, skella sér svo til Noregs í 10 daga þann 11. ágúst (sorrý Anna Guðrún!) en ef einhvern langar að skreppa í helgarferð einhvert bara að hafa samband við mig.. ég er í svona verð-að-komast-til-útlanda ástandi þessa dagana, sérstaklega þar sem ég á að vera að lesa fyrir próf!!!! úffa...

bæjó og gangi ykkur vel í próflestrinum og prófunum